Skoðun

Mikil­vægi í­þrótta­fé­laga

Lárus Sigurðsson skrifar

Íþróttafélögin á Íslandi eru á margan hátt einstakt fyrirbæri. Fyrirbæri sem eru að mínu mati gríðarlega vanmetin í íslensku samfélagi. Þau eru byggð upp af áhugamönnum um íþróttir, sjálfboðaliðum, sem unnu þrotlaust starf til þess að tryggja betri aðsöðu fyrir íþróttaiðkun.

Íþróttafélögin á Íslandi eru almennaheilla félög, án eiganda. Aðkoma sveitarfélaga að íþróttafélögunum var í upphafi þeirra, afar takmörkuð. Fyrst var aðalega um að ræða lóðaúthlutanir en smátt og smátt komu sveitarfélögin meira inn í fjármögnun og uppbyggingu á mannvirkum. Rekstarstyrkir vegna íþrótta hafa líka komið frá sveitarfélögum og eru þeir misjafnir eftir landshlutum, borgum og bæjum. Í flestum tilfellum er um að ræða niðurgreiðslur á æfinga- og fasteignagjöldum og í einhverjum tilfellum viðhaldskostnaði á mannvirkjum. Einstaka sveitarfélög hafa gert enn betur og styrkja barna og afreksstarf með beinu fjárframlagi, en það er sjaldgæft. Engar greiðslur koma til íþróttafélaga frá ríkinu.

Í dag stunda lang flest börn á Íslandi reglulegar íþróttir hjá íþróttafélagi og er hlutfallið mjög hátt í alþjóðlegum samanburði (t.d. um 80% 12 ára barna). Má nefna það hér að forsvarsmenn íþróttafélaga hér á landi kannast við ófáar erlendar sendinefndir sem hafa komið til Íslands frá öðrum löndum til þess að kynna sér starf íslenskra íþróttafélaga.

Það segir sig sjálft að á síðustu áratugum hefur umfang á rekstri íþróttafélaga margfaldast. Mörg af stærstu félögum landsins velta nú yfir einum milljarði króna á ári. Starfsemin er yfirleitt undirmönnuð og erfiðara getur verið er að fá sjálfboðaliða til starfa í réttu hlutfalli við aukna starfsemi.

Íþróttafélögin eru gríðarlega mikilvægur þáttur í okkar samfélagi og er aukinn aðsókn í þeirra starfsemi ekkert annað en fagnaðarefni. Íþróttirnar eru sennilega einn besti undirbúningur sem einstaklingur getur fengið fyrir lífið, fyrir utan það mikilvæga forvarnargildi sem í íþróttum felst. Íþróttafélögin eru í dag orðin stór hluti af okkar uppeldiskerfi, og er það vel.

En rekstur flestra íþróttafélaga hefur verið mjög erfiður á undanförnum árum. Það má segja að á meðan aðsókn og kröfur á íþróttafélögin hafi aukist, hafi fjárhagsleg staða þeirra almennt veikst. Ég veit fyrir víst að mörg íþróttafélög eru að berjast í bökkum hver mánaðarmót að greiða starfsmönnum sínum laun og halda starfseminni gangandi. Ef ekki væri fyrir þrotlaust starf sjálfboðaliða íþróttafélagana, sem vinna gríðarlega óeigingjarnt staf, þá væri flest íþróttafélög landsins komin í greiðsluþrot. Að mínu mati þarf að fara líta á íþróttafélögin í landinu sem stóra stoð í uppeldisstarfinu, sem þau eru. Það þarf að verja íþróttafélögin og tryggja áfram það góða starf sem þau inna af hendi. Það er komnin tími á að enduhugsa og endurmeta starfsemi íþróttafélaga á Íslandi.

Kröfur samfélagsins á íþróttafélögin eru að mörgu leiti óraunhæfar í dag, miða við það fjármagn sem þau hafa úr að moða. Þessu verður að breyta og það þarf að koma á samtali á milli íþróttafélagana og stjórnvalda til þess að tryggja að íþróttafélögin geti haldið áfram að vaxa og dafna og skila áfram því góða starfi sem þau hafa ávallt gert, í tengslum við auknar kröfur, aukinn iðkendafjölda og breyttu umhverfi í samfélaginu.

Höfundur er fyrrverandi formaður Knattspyrnufélagsins Vals



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×